Forsíða
Um starf.is
Fyrirspurn
Tenglar
Skrá starfsumsókn
Laus störf
Verktakaþjónusta
Fræðsluefni
Verðskrá Starf.is
Í vinnslu
Búið að ráða
Í bið
Fréttir

Fræðsluefni
Atvinnuviðtal:

Ef þú hefur lagt inn góða og vandaða umsókn
um starf aukast líkur þínar á að komast í
atvinnuviðtal. Í atvinnuviðtalinu ræðst þó hvort
að þú verður ráðin/n og því mikilvægt að
undirbúa sig vel fyrir viðtalið. Í atvinnuviðtalinu
ert þú að selja þá færni, menntun, hæfni og
eiginleika sem þú býrð yfir. Með öðrum orðum
að markaðssetja þekkingu þína og sannfæra
vinnuveitandann um að þú sért rétti aðilinn í
umrætt starf. Hér eru nokkrar leiðbeiningar
hvað gott er að hafa í huga þegar að
atvinnuviðtali kemur.


1. Aflaðu upplýsinga um fyrirtækið/stofnunina
Það að hafa góðar upplýsingar um fyrirtækið sýnir
áhuga þinn á starfinu og gefur þér færi á að koma
með spurningar um starfið og starfsumhverfið.
Upplýsingar um fyrirtæki má oft fá á vefsíðu þess, í
fréttablöðum, ársritum eða ársskýrslum. Einnig
getur verið gott að ræða við einhvern hjá
fyrirtækinu til að fá upplýsingar um starfssemina.
Ágætt er að útbúa nokkrar spurningar fyrir viðtalið
en gæta skal þó hófs í spurningum enda fyrst og
fremst vinnuveitanda að leiða viðtalið.

2. Undirbúðu þig fyrir spurningar
Það er gott að reyna að gera sér grein fyrir hvað
vinnuveitandi kemur til með að spyrja um í
atvinnuviðtali. Vinnuveitandi gæti t.d. spurt út í
þau störf sem maður hefur unnið og hvernig maður
myndi lýsa sér sjálfum sem starfskrafti? Hverjir
væru helstu styrkleikar og veikleikar manns? Hvers
vegna þú hafir sótt um starfið? Hvers vegna þú hafir
hætt í síðasta starfi? Hvernig þú myndir lýsa þér sem
starfsmanni? Hvernig þú vinnur undir álagi? Hvaða
launahugmyndir þú hefðir? Hvaða hæfni þú hefur
sem kemur til með að nýtast í starfinu? Hvað þér
finnst skipta mestu máli í tengslum við starfið? Hver
séu helstu áhugamál þín? og af hverju ættum við að
ráða þig í þetta starf? Varastu að svara spurningum
bara með jái eða nei og reyndu að útskýra eða lýsa
því sem spurt er um. Mundu að það gefur ekki góða
mynd af þér sem starfskrafti að tala um hindranir
fyrir því að að geta sinnt starfinu. Einnig getur verið
gott að afla sér upplýsinga um hvaða launaviðmiðanir
eru fyrir sambærileg störf fyrir viðtalið. Upplýsingar
um launaviðmiðanir er hægt að fá hjá
stéttarfélögum og kjararannsóknarnefnd
(http://kjara.is/).
Þú gætir spurt spurninga eins og: Hvað felst í
starfinu? Hver er næsti yfirmaður? Hvernig er
þjálfun starfsmanna/ endurmenntunarmálum háttað?
Hvað starfa margir hjá fyrirtækinu? Er þetta nýtt
starf? Er fyrirtækið með fleiri starfsstöðvar? Hvernig
er frammistaða starfsmanna metin? ofl.

3. Hafðu gögn meðferðis
Æskilegt er að hafa prófskírteini, umsagnir og
atvinnuumsóknina sem þú sendir með í
atvinnuviðtalið ef vinnuveitandi óskar eftir að fá að
sjá frumrit gagna.

4. Mættu tímalega
Mættu tímanlega í viðtalið, hafðu á hreinu við hvern
þú átt að tala og hvar viðtalið á að fara fram. Það
gefur ekki góða mynd að starfskrafti að koma of
seint eða á síðustu stundu. Það veitir þér einnig
öryggiskennd að vera á tíma og geta farið yfir þau
atriði í huganum sem þú vilt að komi fram í
viðtalinu. Í upphafi skaltu taka í höndina á
viðmælanda/endum þínum og kynna þig og horfast í
augu við þá. Mundu að maður mætir ekki með börnin
eða fjölskylduna í atvinnuviðtal!

5. Vertu snyrtileg/legur og berðu þig vel
Hluti þess að koma vel fyrir er að vera í viðeigandi
fatnaði við það starf sem sótt er um og bera sig vel.
Hafa skal í huga að það að vera hreinn og snyrtilegur
er mikilvægt í hvaða starfi sem er. Forðast skal að
mæta með tyggjó eða nýbúin/n að reykja í viðtalið.
Hugaðu að líkamsstöðu þinni s.s. að vera bein/n í
baki og halda höndunum kyrrum. Og mundu eftir að
slökkva á gsm símanum!

6. Vertu heiðarleg/ur og sýndu áhuga.
Það skiptir máli að svara spurningum vinnuveitanda
af heiðarleika. Ef maður hefur verið fjarri vinnu um
tíma þarf að búa sig undir að svara slíkum
spurningum og gæta þess að svara af einlægni.
Sýndu líka fram á áhuga þinn, metnað og þrótt til
þess að starfa í umræddu starfi. Reyndu að vera
meðvituð/aður um styrkleika þína og láttu þá koma
fram í viðtalinu. Gættu þess að tala aldrei illa um
fyrri vinnuveitendur og ræddu um fyrri störf á
jákvæðan hátt. Í lok viðtalsins er ágætt að kveðja
viðmælendur með handabandi og þakka fyrir sig og
ef til vill spyrja hvenær megi vænta svara við
umsókn ef það hefur ekki komið fram í sjálfu
viðtalinu.

7. Dragðu lærdóm af reynslu þinni
Ef til vill finnst þér sem að viðtalið hafi ekki gengið
vel. Ekki hafa of miklar áhyggjur, það er eðlilegt að
vera svolítið taugaóstyrkur í atvinnuviðtali. Reyndu
hinsvegar að halda ró þinni eins og þér er unnt og
hugleiddu það eftir viðtalið hvað hefði mátt betur
fara. Þá gengur þér betur næst. Gangi þér vel!

Starf.is · Hlíðasmári 15 · 201 Kópavogi · Sími 820-3799 Netfang: starf@starf.is